Árlegur jólabasar iðjuþjálfunar á Kleppi verður haldinn fimmtudaginn 1. nóvember 2007. milli kl. 12:00 og 16:00
í iðjunni (hvíta húsinu á bakvið aðalbygginguna).
Á basarnum verða til sölu fallegir handunnir munir, s.s. mosaik, keramik, skartgripir og margt, margt fleira.
-Frábærar jólagjafir og nytjahlutir á góðu verði.
Kaffisala verður á staðnum, þar sem boðið verður upp á kaffi, kakó, vöfflur, gos o.þ.h.
Allir velkomnir