Námskeið fyrir aðstandendur geðklofasjúklinga verður haldið við endurhæfingarmiðstöð geðsviðs LSH að Kleppi. Það hefst miðvikudaginn 17. október 2007.
Námskeiðið verður á miðvikudögum frá kl. 13:00 til 16:00 í samkomusal í húsi iðjuþjálfunar að Kleppi. Þátttaka tilkynnist fyrir 15. október í síma 543 4200 virka daga á milli kl. 9:00 og 16:00 eða með tölvupósti á netfangið kristoth@landspitali.is. Gert er ráð fyrir að fjöldi þátttakenda verði ekki umfram 25. Námskeiðið er ókeypis.
Dagskrá:
Miðvikudaginn 17. október 2007 | Einkenni og meðferð geðklofa Nanna Briem sérfr. í geðlækningum |
|
Miðvikudaginn 24. október 2007 |
Líðan fjölskyldu þegar einstaklingur veikist Minerva Sveinsdóttir og Stefanía Sæmundsdóttir geðhjúkr.fr. Um nauðungarvistanir og sjálfræðissviptingar |
|
Miðvikudaginn 31. október 2007 |
Meðferðarúrræði fyrir geðklofasjúklinga á geðsviði LSH: Bráðameðferð – Endurhæfing- Eftirfylgd Kristófer Þorleifsson sérfr. í geðlækningum Hugræn aðferlismeðferð og samskipti við geðklofasjúklinga |
|
Miðvikudaginn 7. nóvember 2007 |
Félagsleg þjónusta fyrir geðfatlaða Þóra St. Pétursdóttir félagsráðgj. Virkni í daglegu lífi Fanney Bj. Karlsd. iðjuþjálfi |
|
Miðvikudaginn 14. nóvember 2007 |
Listmeðferð sem meðferðarúrræði á geðdeild: Sköpun – tjáning- meðvitund. Fyrirlestur og "Workshop" Anna Gréta Hrafnsdóttir og Sólveig Katrín Jónsdóttir listmeðferðarfræðingar Sjúkraþjálfun: Hreyfing – yoga og hugleiðsla |
|
Miðvikudaginn 21. nóvember 2007 |
Eftirfylgd og umræður |
___________________
Þátttaka tilkynnist fyrir 15. október í síma 543-4200 virka daga á milli kl. 9 -16 eða með tölvupósti á netfangið kristoth@landspitali.is. Reiknað er með að fjöldi þátttakenda verði ekki umfram 25.Námskeiðið er ókeypis.