Frá Blóðbankanum:
Það hefur skapast mikil og rík þörf fyrir blóðhluta hjá sjúkrahúsunum vegna sjúkdóma, bráðra veikinda, aðgerða og slysa á síðustu dögum.
Framundan er löng ferðahelgi sem vonandi verður slysalaus.
Við leitum sérstaklega eftir blóðgjöfum í O mínus.
Þegar Blóðbankinn sendir áskorun af þessu tagi eru ríkar ástæður að baki.
Blóðbankinn sinnir heilbrigðisstofnunum um land allt.
Á þessum árstíma reynist Blóðbankanum oft erfitt að halda uppi nægum blóðhlutabirgðum.
Mikið hefur verið notað af rauðkornum og blóðflögum síðustu dagana.
Rauðkorn eru notuð við aðgerðir og slys.
Blóðflögur eru gjarnan notaðar í stórum aðgerðum en ekki síst sem stuðningsmeðferð við krabbameinssjúka.
Það er því mikilsvert að Blóðbankinn eigi nægar birgðir þessara blóðhluta á hverjum tíma.
Blóðbankinn leggur sérstaka áherslu á að fá virka blóðgjafa í öllum blóðflokkum til að koma.
Blóðbankinn verður opinn fimmtudaginn 2. ágúst 2007 til klukkan 19:00 og til klukkan 12:00 föstudaginn 3. ágúst.