Lionsklúbburinn Þór færði slysa- og bráðasviði LSH að gjöf fimm nýjar Tetra talstöðvar 21. maí 2007. Talstöðvarnar leysa af hólmi eldri tæki sem ætluð voru fyrir greiningarsveit LSH. Þar sem nýju tækin eru létt og meðfærileg er notagildi þeirra mun meira en hinna eldri og munu þau nýtast við dagleg störf á slysa- og bráðadeild auk þess að koma sér vel við hópslysaviðbúnað.
Lykilstjórnendur deildarinnar munu geta notað stöðvarnar til að taka á móti tilkynningum frá sjúkrabifreiðum og þyrlum auk þess sem þeir geta haft samband sín í milli. Lionsklúbbnum voru færðar kærar þakkir fyrir þessar ágætu gjafir.