Fjöldi fólks fylgdist með, þar á meðal fulltrúar margra félagasamtaka sem hafa gefið fé til BUGL í þjóðarátaki sem staðið hefur yfir vegna fyrirhugaðra endurbóta.
Ákveðið hefur verið að byggja upp og endurbæta húsnæði barna- og unglingageðdeildarinnar þannig að hægt verði að hýsa starfsemina þar til lengri tíma.
Fyrirhugað er að vinna verkið í fjórum áföngum:
1. Nýbygging göngudeildar
2. Nýbygging iðjuþjálfunar og skóla
3. Viðbygging og endurinnrétting innlagnadeilda
4. Endurinnrétting sameiginlegs hluta göngu- og innlagnadeilda
Í mars 2006 lá fyrir frumkostnaðaráætlun vegna allra áfanganna sem unnin var af Arkis ehf., alls um 650 milljónir króna.
Fyrsti áfanginn, nýbygging göngudeildar, var boðinn út í desember 2006 og bárust 14 tilboð.
Lægsta tilboð átti Framkvæmd ehf. sem bauð 275 milljónir króna eða 95,6% af kostnaðaráætlun.
Við uppbyggingu BUGL er byggt á þeirri stefnu Landspítala - háskólasjúkrahúss að efla dag- og göngudeildarþjónustu
og leggja meiri áherslu á meðferðarrými fyrir einstaklinga og hópa en hefðbundin legurými.
Með viðbyggingunni verður umtalsvert rýmra um göngudeildarþjónustuna og vegur þar þyngst fjölgun viðtalsherbergja og meðferðarherbergja.
BUGL sinnir þjónustu við börn og unglinga um allt land. Deildin skiptist í barnadeild, unglingadeild og göngudeild.
Göngudeildin skiptist m.a. í almenna göngudeild, átraskanateymi, vettvangs- og bráðateymi og fjölskylduteymi.
Komur á göngudeildina voru tæplega 5000 árið 2006 og hefur komum fjölgað um tugi prósenta á síðustu árum.
Nýtt húsnæði göngudeildar mun stórbæta aðstæður sjúklinga og starfsfólks BUGL. Viðbyggingin verður 1244 fermetrar, tvær hæðir og kjallari.
Á efri hæðunum tveimur verður móttaka og skrifstofur en í kjallara verður matsalur, geymslur og vinnuaðstaða.
Grafið verður frá kjallaranum og hægt að ganga þaðan út í garð.
Byggingin verður tengd núverandi húsi með glerjuðum tengigangi og ný aðkoma verður gerð að húsinu frá Dalbraut þar sem verða bílastæði.
Fjöldi félagasamtaka hefur stutt við áform um uppbyggingu barna- og unglingageðdeildarinnar með myndarlegum gjöfum.
Má þar nefna Kvenfélagið Hringinn, Barnaheill, Thorvaldsenfélagið, Kiwanis, Lionshreyfinguna, kvenfélagasamtök og marga fleiri, einstaklinga og fyrirtæki.
Mynd 1: Ólafur Ó. Guðmundsson yfirlæknir á BUGL flutti ávarp.
Mynd 2: Linda Kristmundsdóttir deildarstjóri göngudeildar BUGL flutti ávarp.
Mynd 3: Undirritun samnings. Jón Gunnar Gíslason fulltrúi Framkvæmdar ehf. og Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra. Verkkaupi framkvæmdarinnar er Landspítali - háskólasjúkrahús fyrir hönd heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins. Umsjón með framkvæmdunum hefur Framkvæmdasýsla ríkisins. Arkis ehf. er arkitekt byggingarinnar, hönnun lóðarinnar annaðist Landhönnun ehf., Línuhönnun hf. hannaði burðarþol og lagnir og Raftæknistofan ehf. raflagnir.
Mynd 4: Forstjórinn sker tertuna - Fjöldi fólks fagnaði merkum viðburði á BUGL, þar á meðal heimafólk og fulltrúar margra þeirra sem hafa fært starfseminni góðar gjafir sem nýtast nú til uppbyggingar. Unga fólkið leit hýru auga til góðra veitinga. Magnús Pétursson forstjóri stýrði athöfninni á BUGL, á hans vegum var terta í tilefni dagsins og hann kom til aðstoðar með að skera og færa á diska.