Boðinn hefur verið út fyrsti áfangi viðbyggingar við núverandi húsnæði barna- og unglingageðdeildar BUGL við Dalbraut.
Nýbyggingin er tvær hæðir og kjallari. Húsið er 1.244 m² að stærð og á að skila því fullbúnu í maí 2008. Á 1. hæð verður móttaka göngudeildar, viðtals- og meðferðarherbergi og á 2. hæð skrifstofur starfsmanna og viðtalsaðstaða. Í kjallara verður starfmannamötuneyti, vinnuherbergi, tæknirými og fleira.
Vegna nýja hússins verður gerð ný aðkoma frá Dalbraut með bílastæðum og gengið frá lóð við húsið. Áætlaður kostnaður við nýbygginguna nemur tæpum 340 milljónum króna.
Félagasamtök hafa stutt við áform um uppbyggingu á BUGL með myndarlegum gjöfum og má þar helst nefna Kvenfélagið Hringinn, Barnaheill, Thorvaldsenskonur, Kiwanismenn, Lionsmenn, kvenfélagasamtök auk margra annarra. Þá hefur Kleifarvegur 15 verið seldur til að fjármagna verkefnið en hann var á sínum tíma gefinn til þessa málaflokks.
Fjöldi einstaklinga og fyrirtækja hafa að undanförnu og áður látið fé af hendi rakna til stuðnings barna- og unglingageðdeild BUGL í sannkölluðu þjóðarátaki. Þetta er kærkominn stuðningur sem nýtist starfseminni ákaflega vel.