Starfsmenn Capacent hafa ákveðið að barna- og unglingageðdeild BUGL fái árlegan styrk fyrirtækisins sem veittur er til góðs málefnis.
Að þessu sinni er styrkurinn 1 milljón króna.
Capacent er ráðgjafar, ráðningar- og rannsóknarfyrirtæki sem rekur stærstu ráðningarstofu landsins, Capacent ráðningar (áður Mannafl-Liðsauki).
Innan Capacent rannsókna er Capacent Gallup sem margir kannast við.
Ráðgjafarhlutinn byggir á ráðgjafarfyrirtækjunum Ráðgarði, IMG Deloitte og KPMG Ráðgjöf sem nú eru sameinuð í Capacent ráðgjöf.
Nafninu á fyrirtækinu var breytt úr IMG í Capacent 5. september 2006.