Almenna verkfræðistofan, Fellsmúla 26, sendir ekki jólakort í ár. Í staðinn færði Helgi Valdimarsson framkvæmdastjóri hennar göngudeild barna- og unglingadeildar (BUGL) 350.000 kr. sem tekið var á móti í dag, miðvikudaginn 13. desember 2006, með kærum þökkum.
Þessi gjöf eins og margar aðrar slíkar að undanförnu koma barna og unglingageðdeildinni mjög vel. Nú styttist í það að hægt verði að hefja framkvæmdir við byggingu nýs húsnæðis fyrir göngudeildina.