Kvenfélagið Hringurinn er að hefja sína árlegu jólakortasölu. Allur ágóði rennur til styrktar veikum börnum á Íslandi.
Jólakortið 2006 er hannað af Kolbrúnu Sigurðardóttur og prentað af prentsmiðjunni Odda. Myndin á forsíðu þess er einnig eftir Kolbrúnu og ber heitið "Í skýjunum".
Kortin eru seld í 5 eða 10 stk. pökkum með hvítum umslögum.
Kortin verða til sölu í mörgum verslunum Lyf og heilsu, Hagkaupum, á nokkrum stöðum á Landspítala, á Barnaspítalanum og víðar.
Fyrirtæki og aðrir sem þurfa mikinn fjölda af kortum geta sent pöntun í tölvupósti á póstfangið hringurinn@simnet.is.
Kortin er þá hægt að fá bæði með og án texta. Prentsmiðjan Oddi tekur einnig að sér að prenta merki (logo) fyrirtækja í kortin. Einnig má lesa inn pöntun á símsvara félagsins í síma 551 4080.