Starfsmannaráð LSH samþykkti eftirfarandi ályktun miðvikudaginn 17. maí 2006 um byggingu nýs háskólasjúkrahúss við Hringbraut:
"Starfsmannaráð Landspítala - háskólasjúkrahúss ítrekar eindreginn stuðning við byggingu nýs háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Húsakostur LSH er orðinn gamall og stendur starfseminni fyrir þrifum. Þá er spítalinn á mörgum stöðum í dag, sem er afar óhagstætt. Það er því ljóst að endurnýjun er nauðsynleg og má ekki dragast. Ákvörðun hefur verið tekin um uppbyggingu spítalans við Hringbraut og hefur skipulegur undirbúningur byggingar staðið frá árinu 2000. Starfsmenn LSH hafa tekið virkan þátt í þeirri vinnu. Þá hafa stjórnendur ríkis og borgar átt ríkan þátt í því að leiða málið til lykta. Með nýjum spítala batna aðstæður sjúklinga, starfsmanna og nemenda verulega. Það tekur mörg ár að byggja nýtt háskólasjúkrahús og þann tíma þarf að þreyja. Undirbúningurinn er í eðlilegum farvegi og frá honum má ekki hvika."