Ný deild, meltingar- og nýrnadeild, verður opnuð á LSH mánudaginn 15. maí 2006. Hún verður staðsett á gangi hjartadeildar, 14G, í sumar. Þar verða legupláss fyrir u.þ.b.11 nýrnasjúklinga en meltingarsjúklingar verða áfram í sumar á A-7 í Fossvogi.
Þann 4. september í haust er fyrirhugað að meltingar- og nýrnadeildin flytjist á gang 13E á Hringbraut.
Deildarstjóri er Hildur Þóra Hallbjörnsdóttir.