Fimm ára ráðningartími framkvæmdastjóra Landspítala - háskólasjúkrahúss rennur út í maí 2005.
Af því tilefni hefur Gísli Einarsson læknir tjáð forstjóra og formanni stjórnarnefndar þá ætlan sína að sækjast ekki eftir framhaldi í starfi framkvæmdastjóra kennslu, vísinda og þróunar.
Gísli mun snúa aftur til klínískra starfa á sjúkrahúsinu.