Á laugardögum í janúar 2005 verða sendir út á Rás 1 þættir sem bera yfirskriftina "Forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu". Þeir eru á dagskrá kl. 10:15 og endurfluttir á mánudögum kl. 15:03. Hver þáttur er 40 mínútna langur. Þættirnir verða einnig aðgengilegir á heimasíðu Ríkisútvarpsins – www.ruv.is. Umsjónarmaður er Karl Eskil Pálsson fréttamaður RÚV á Akureyri.
Þættirnar eru byggðir á umræðum á ráðstefnu sem heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri og Fjórðungssjúkrahússið á Akureyri héldu sl. haust og bar yfirskriftina "Forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu – hvert leiðir hún varðandi kostnað, réttindi sjúklinga og einkavæðingu?", en þar voru flutt fast að tuttugu athyglisverð erindi um þetta málefni.
Í þáttunum verður leitast við að svara þeirri viðamiklu spurningu; hvernig á að forgangsraða í heilbrigðiskerfinu? Einnig verður þeim spurningum varpað fram hvort einkavæðing heilbrigðiskerfisins sé til þess fallin að veita betri þjónustu en núverandi kerfi, er það framtíðin að tryggingafélögin komi á einn eða annan hátt að heilbrigðisþjónustunni, eins og þekkist t.d. í Bandaríkjunum, hver er siðferðishliðin á forgangsröðun í heilbrigðisþjónustunni og hvort rétt sé að þeir sem greiði mest til samfélagsins fari framar í forgangsröðina en þeir sem minna greiði í sameiginlega sjóði landsmanna? Þessum og mörgum öðrum spurningum verður velt upp í þáttaröðinni.
Í fyrsta þætti, laugardaginn, 8. janúar, kl. 10:15, munu reifa sín sjónarmið þeir Ingimar Einarsson, skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Halldór Jónsson, forstjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, Matthías Halldórsson, aðstoðarlandlæknir og Sigurbjörn Sveinsson, formaður Læknafélags Íslands.
Í öðrum þætti, sem verður sendur út 15. janúar, viðra sínar skoðanir þeir Þórólfur Matthíasson, prófessor við Háskóla Íslands, Kristján Kristjánsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, og Ásgeir Baldurs hjá Vátryggingafélagi Íslands og núverandi framkvæmdastjóri Varðar vátryggingafélags.
Í þriðja þættinum, sem verður sendur út 22. janúar, koma fram sjónarmið þeirra Steinunnar Friðriksdóttur, formanns Styrks – samtaka krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra, Erlu Óskar Ásgeirsdóttur, hjá SÍBS – Sambandi íslenskra berkla- og brjótsholssjúklinga, Emils Thoroddsen, formanns Gigtarfélags Íslands og Sveins Magnússonar, framkvæmdastjóra Geðhjálpar.
Í fjórða og síðasta þættinum, sem verður sendur út 29. janúar nk., verður síðan gerð grein fyrir sjónarmiðum fulltrúa stjórnmálaflokkanna.
(Fréttatilkynning)