Sylvía Svíadrottning skoðaði Barnaspítala Hringsins í dag, á fyrsta degi opinberrar heimsóknar sænsku konungshjónanna og dóttur þeirra til Íslands. Dorrit Moussaieff forsetafrú var í för með drottningu og með þeim fjölmennt fylgdarlið aðstoðarmanna og fjölmiðlafólks. Jóhannes M. Gunnarsson forstjóri LSH, Anna Stefánsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar og sviðsstjórar barnasviðs, Ásgeir Haraldsson og Magnús Ólafsson tóku á móti gestunum, gengu um húsið með þeim og sögðu frá starfseminni.
Svíadrottning á barnaspítalanum
Sylvía drottning Svía heimsótti Barnaspítala Hringsins í dag ásamt Dorrit Moussaieff forsetafrú.