Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er mánudaginn 14. júní 2004. Í Blóðbankanum verður af því tilefni lítið "karnival". Allir blóðgjafar fá pylsur sem SS gefur. Blómabændur gefa einnig öllum blóðgjöfum rauða rós. Upp úr hádegi kemur Og Vodafone bíllinn, sem er tveggja hæða strætó, og hægt er að spila inn í honum ýmsa leiki svo sem þyt-hokkí og fleira. Gestirnir verða einnig með "spark-mark" í garðinum þar sem boðið verður upp á að reyna að skora mark hjá Manchester United. Allir sem taka þátt í sparkleiknum fá dómaraflautu og þeir sem skora fá boltann gefins.
Karnival á blóðgjafadegi
Blóðbankinn stendur fyrir "karnivali" á alþjóðlega blóðgjafadeginum 14. júní 2004.