Árleg sumarsala á handunnum vörum frá iðjuþjálfun geðdeildar verður haldin fimmtudaginn 3. júní 2004 frá kl. 12:00 til 15:30.
Afrakstur vetrarstarfsins verður til sölu.
Í boði eru margar fallegar vörur á lágu verði en þar á meðal má nefna töskur, barnateppi og margt fleira.
Salan verður í anddyri geðdeildarhúss á Landspítala Hringbraut.
Einnig verður boðið upp á kaffi og meðlæti fyrir sanngjarnt verð.
Starfsfólkið hvetur fólk til þess að láta þetta ekki framhjá sér fara og lofar ekta sumarstemningu.