Veggspjaldasýning með kynningum á rannsóknarverkefnum vísindamanna á Landspítala - háskólasjúkrahúsi hefur verið framlengd. Sýningin er í K-byggingu, Landspítala Hringbraut. Hún verður þar til loka mánudagsins 17. maí 2004.
Á sýningunni eru 50 veggspjöld.
Ágrip veggspjaldanna komu út í prentuð hefti, Vísindi á vordögum 2004. Hægt er að skoða ágripin á upplýsingavefnum með því að smella hér.