Ingileif Jónsdóttir dósent við ónæmisfræðideild Landspítala - háskólasjúkrahúss fékk í dag verðlaun fyrir vísindastörf sín úr nýstofnuðum sjóði. Verðlaunin voru afhent á ársfundi LSH í Hringsal og nema þau 2 milljónum króna. Sjóðinn stofnuðu tveir læknar sem hafa lengi starfað við Landspítala - háskólasjúkrahús og næstum jafn lengi gegnt kennarastöðum við læknadeild Háskóla Íslands. Þetta eru þeir Árni Kristinsson og Þórður Harðarson.
Sjóðnum er einkum ætlað að veita verðlaun fyrir frábæran árangur á sviði lækna- og heilbrigðisvísinda. Verðlaunaveiting verður ýmist árlega eða annað hvort ár, eftir því sem tilefni gefast. Auglýst verður eftir tilnefningum á hverju ári. Að þessu sinni ákváðu stofnendur sjálfir hver hlyti verðlaunin en nutu ráðgjafar ýmissa, einkum Helgu Ögmundsdóttur prófessors við læknadeild. Við val á verðlaunahafa var auk vísindaverðleika áskilið að vísindamaðurinn væri enn fullvirkur í vísindastarfi og hefði verið ötull kennari nemenda á ýmsum stigum rannsóknarnáms.
Ingileif er fyrirlesari á alþjóðlegri ráðstefnu í Finnlandi og gat því ekki veitt verðlaununum viðtöku. Eiginmaður Ingileifar, Birgir Björn Sigurjónsson, tók við verðlaununum fyrir hennar hönd.
Ingileif Jónsdóttir:
Líffræðingur frá Háskóla Íslands 1975
Doktorsnám og kennsla í ónæmisfræði við Stokkhólmsháskóla 1976-1984, doktorspróf 1991
Sérfræðingur við læknadeild HÍ 1984-1986
Sérfræðingur við ónæmisfræðideild Landspítala frá 1986
Dósent við Háskóla Íslands;
-Námsbraut í hjúkrunarfræði 1994-1999
-Læknadeild frá 1999
Helstu vísindastörf og rannsóknarverkefni:
· Hlutdeild ónæmiskerfisins í tilurð og meingerð psoriasis
· Rannsóknir á grundvallarþáttum í ónæmissvörum við bólusetningu í músum og mönnum
· Samspil hýsils og sýkils; ónæmissvör, pneumókokkar og sýklalyfjaónæmi
· Klínískar rannsóknir á próteintengdum fjölsykrubóluefnum gegn pneumókokkum í ungbörnum, smábörnum, fullorðnum í áhættuhópum
· Öryggi bóluefnanna, myndun og virkni mótefna, áhrif á bólfestu pneumókokka í nefkoki, á sýklalyfjanotkun og tíðni eyrnabólgu