Flutningsfyrirtækið DHL á Íslandi ákvað að í stað þess að senda út jólakort til fjölmargra viðskiptavina sinna í ár styrkti fyrirtækið fræðslusjóð Barnaspítala Hringsins að upphæð 150.000 krónur. Tilgangur fræðslusjóðs Barnaspítala Hringsins er að efla fræðslu um börn, barnasjúkdóma og velferð barna.
Magnús Ólafsson sviðsstjóri hjúkrunar á barnaspítalanum tók við styrknum frá Hildi Þórisdóttur starfsmannastjóra DHL á Íslandi.
Magnús Ólafsson sviðsstjóri hjúkrunar á barnaspítalanum tók við styrknum frá Hildi Þórisdóttur starfsmannastjóra DHL á Íslandi.