Kvenfélagið Hringurinn verður með sitt árlega jólakaffi sunnudaginn 7. desember að Hótel Íslandi kl. 13:30. Skemmtidagskrá og að vanda glæsilegt happdrætti með fjölda góðra vinninga. Tilvalin skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Læknar Barnaspítala Hringsins munu aðstoða kvenfélagskonurnar. Ágóðinn rennur til styrktar veikum börnum á Íslandi.
Velunnarar Barnaspítala Hringsins eru hvattir til að mæta.
Velunnarar Barnaspítala Hringsins eru hvattir til að mæta.