Í dagbók jólanna sem kemur út í Spítalapúlsinum í byrjun desember verður meðal annars yfirlit um aðventustundir á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Prestar sjúkrahússins eru að taka saman lista yfir þessar aðventustundir, svo og um messuhald um jól og áramót.
Þeir sem eru að undirbúa aðventustundir á deildum sjúkrahússins eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson sjúkrahúsprest, kjartans@landspitali.is, s. 8248, í síðasta lagi mánudaginn 1. desember 2003.