Námskeið fyrir aðstandendur geðsjúkra eru að hefjast á vegum geðsviðs Landspítala - háskólasjúkrahúss. Á fyrra námskeiðinu, sem hefst 9. október, verður sjónum beint að þunglyndi en á hinu síðara, sem hefst 6. nóvember, að geðklofa. Þverfaglegt teymi mun ræða um hvernig stuðla megi að bættri líðan geðsjúkra og aðstandenda þeirra. Þá mun fulltrúi aðstandenda koma til liðs við teymið og segja frá nýstofnuðum samtökum aðstandenda. Góður tími gefst til umræðna og fyrirspurna.
Námskeiðin verða haldin í samkomusal í húsi iðjuþjálfunar að Kleppi (austan við skrifstofubyggingu) þrjú fimmtudagskvöld í röð kl. 19:30-22:00. Námskeiðin eru þátttakendum að kostnaðarlausu. Skráning á námskeiðin fer fram í síma 543 4200. Unnt er að skrá sig nú þegar.