Fréttatilkynning 22. apríl 2003
Um þessar mundir eru liðin 30 ár frá því að starfsemi hófst á endurhæfingardeild Landspítala Grensási. Af því tilefni verður efnt til afmælisdagskrár föstudaginn 25. apríl í húsakynnum deildarinnar við Álmgerði.
Húsið verður opið almenningi kl.15:00 til 16:30 þar sem gefst kostur á að kynnast starfsemi deildarinnar og aðstöðu. Þar verður opin þjálfunaraðstaða, ásamt sundlaug og hluti legudeildar á þriðju hæð.