Starfsemi er komin á fullan skrið í nýjum og glæsilegum Barnaspítala Hringsins, þótt enn eigi eftir að festa margt í skorður. Það er búinn að vera annasamur tími hjá starfsmönnum að undirbúa flutning og síðan flytja í dag. En menn gáfu sér þó tíma til að koma saman í anddyrinu stutt stund og fá sé kaffi, gos og meðlæti.
Á upplýsingavef Barnaspítala Hringsins er að finna fjölmargt gagnlegt um skipulag og starfsemi í nýja húsinu.
Bil |
|
Þessi hlið Barnaspítala Hringsins snýr að Hringbraut og þarna á horninu er aðalinngangur í húsið. |