Í tilefni af opnun Barnaspítala Hringsins var jafnframt opnaður nýr vefur hans á upplýsingavef LSH. Á vefnum er að finna margs konar efni um starfsemina, samkvæmt skipulagi sem þar verður. Stefnt er að því að auka efnisval, myndefni og skipulag á vefnum verulega eftir að eiginleg starfsemi hefst í Barnaspítalanum. Á nýja vefnum er meðal annars "Krakkahorn" þar sem hafa verið teknar saman krækjur á innlenda og erlenda krakkavefi.
Til hægri á forsíðu heimavefs LSH er listi yfir nýja vefi á upplýsingavef LSH, þar á meðal er vefur Barnaspítala Hringsins.