Skrifstofa framkvæmdastjóra hjúkrunar hefur birt yfirlit um breytta starfsemi sjúkradeilda LSH um jól og áramót 2002/2003.
Barnasvið
Hringbraut
Dagdeild barna á 11A verður lokuð frá 23. desember til 1. janúar 2003.
Geðsvið
Móttökudeildir
Teigur v/Flókagötu verður lokuð frá 20. desember kl. 16:00 til 2. janúar kl. 8:00.
Að venju mun göngudeild áfengis og almenn göngudeild v/Hringbraut ásamt Hvítabandi verða lokaðar rauðu dagana
24. desember kl. 12:00 til 27. desember kl. 8:00 og 31. desember kl. 12:00 til 2. janúar kl. 8:00.
Endurhæfingardeildir
Deild 11 Kleppi verður lokuð 24. desember kl. 16:00 til 25. desember kl. 16:00.
Deild 24 v/Reynimelverður lokuð 24. desember kl. 16:00 til 25. desember kl. 16:00 og 31. desember kl. 16:00 til 1. janúar kl. 16:00.
Deild 26 Laugarásvegi 71 verður lokuð 24. desember kl. 12:00 til 26. desember kl. 8:00 og 31. desember kl. 12:00 til 2. janúar kl. 8:00.
Að venju mun dag- og göngudeild á Kleppi verða lokuð rauðu dagana 24. desember kl. 12:00 til 27. desember kl. 8:00 og 31. desember kl. 12:00 til 2. janúar kl. 8:00.
BUGL Dalbraut 12
Barnageðdeild verður lokuð frá 20. desember kl. 16:00 til 3. janúar kl. 8:00.
Meðferðardeild v/Kleifarveg verður lokuð frá 20. desember kl. 16:00 til 3. janúar kl. 8:00.
Að venju mun göngudeild BUGL verða lokuð rauðu dagana 24. desember kl. 12:00 til 27. desember kl. 8:00 og 31. desember kl. 12:00 til 2. janúar kl. 8:00.
Lyflækningasvið I
Hringbraut
Deild 11B verður lokuð frá og með 16. desember til 6. janúar 2003.
Fossvogur
Á deild A-7 verður fækkað um 8 rúm frá 20. desember til 2. janúar 2003.
Vífilsstaðir
Húðlækningadeild verður lokuð frá 20. desember til 6. janúar 2003.
Lyflækningasvið II
Krabbameinslækningadeild 11E verður lokuð frá 23. desember til 2. janúar ; sjúklingar fara á deild 11G.
Skurðlækningasvið
Hringbraut
Deild 13A verður lokuð frá 19. desember til 2. janúar 2003.
Deild 13D verður lokuð frá 22. desember til 2. janúar 2003.
Deild 13G verður lokuð frá 22. desember til 2. janúar 2003.
Fossvogur
Deild A-4 verður lokuð frá 22. desember til 2. janúar 2003.
Öldrunarsvið
Landakot
Öldrunarlækningadeild L-2 verður lokuð frá 20. desember kl. 16:00 til 6. janúar kl. 8:00.
L-0 dagspítaladeild verður lokuðfrá 20. desember kl. 16:00 til 2. janúar kl. 8:00.
L-0móttökudeild verður lokuð frá 20. desember kl. 16:00 til 2. janúar kl. 8:00.