Séra Birgir Ásgeirsson flytur erindi um andlegar og trúarlegar þarfir sjúklinga í fundarsal inn af matsal á Landspítala Hringbraut mánudaginn 18. nóvember kl. 14:30-15:30. Hann nálgast þetta viðfangsefni frá víðum sjóndeildarhring, fjallar um andlegar og trúarlegar þarfir ýmissa hópa, ekki bara hinna kristnu og hvernig hægt er að koma á móts við þessar þarfir sjúklinga á LSH. Kristilegt félag heilbrigðisstétta stendur fyrir erindinu.
Um andlegar og trúarlegar þarfir sjúklinga
Sr. Birgir Ásgeirsson flytur erindi í fundarsal inn af matsal á Landspítala Hringbraut 18. nóvember kl. 14:30.