Hópur forystumanna stéttafélaga og stéttarsamtaka fræddist um skipulag og starfsemi Landspítala - háskólasjúkrahúss á sérstakri kynningu í dag. Forstjóri LSH hefur að undanförnu staðið fyrir slíkum kynningum á sjúkrahúsinu. Nýlega voru hér bæði heilbrigðisnefnd Alþingis og fjárlaganefnd. Á þessum kynningum segja stjórnendur á Landspítala - háskólasjúkrahúsi frá, svara spurningum gesta og taka þátt í umræðum.
Starfsemin kynnt
Forystumönnum stéttarfélaga var kynnt starfsemi Landspítala - háskólasjúkrahúss í röð kynningarfunda sem forstjóri LSH stendur fyrir.