Landspítali - háskólasjúkrahús
Skrifstofa forstjóra
Fréttatilkynning 24. október 2002
Fjöldi athyglisverðra fyrirlestra verður á hjartafræðsludegi 7. nóvember 2002 á Hótel Loftleiðum og kynnt verður starfsemi hjartadeilda á LSH.
Tilefni fræðsludagsins er sameining hjartalækninga á Landspítala - háskólasjúkrahúsi þann 11. nóvember, við Hringbraut.
Dagskrá fræðsludagsins er öllum opin. Hún er birt á upplýsingavef Landspítala - háskólasjúkrahúss www.landspitali.is. Skráning hjá Sigríði Ástvaldsdóttur á skrifstofu starfsmannamála fyrir 1. nóvember í síma 543 1330, sigridas@landspitali.is.