Blóðsöfnunarbíllinn nýi var "prufukeyrður" við bílaumboðið Heklu á dögunum, sbr. frétt á hekla.is. Önnur slík "prufukeyrsla" verður á lóð Blóðbankans miðvikudaginn 16. október. Þá er upplagt tækifæri fyrir starfsmenn Landspítala - háskólasjúkrahúss að skoða bílinn og gefa blóð í leiðinni. Bíllinn verður opinn frá kl. 10:00 til 15:00.
Blóðsöfnunarbíllinn við Blóðbankann
Nýi blóðsöfnunarbíllinn verður á lóð Blóðbankans frá kl. 10:00 til 15:00 miðvikudaginn 16. október. Starfsmenn LSH geta skoðað hann þá og gefið blóð í leiðinni.