Í tilefni af sameiningu hjartalækninga við Hringbraut hefur verið ákveðið að halda "hjartadag" 7. nóvember, með fræðsludagskrá á Hótel Loftleiðum. Dagskráin verður opin öllum starfsmönnum LSH og nemendum við spítalann. Í undirbúningsnefnd eru hjúkrunarfræðingar af bráðamóttöku, gjörgæslu, 14E og G, hjartaskurðdeild, barnadeild og sjúkraþjálfari frá endurhæfingu. Dagskrá verður birt innan skamms.
Undanfarin misseri hafa hjartalækningar verið sameinaðar við Hringbraut í áföngum. Því lýkur 11. nóvember þegar opnuð verður hjarta- og lungnaskurðdeild á 12E.