Linda Kristmunsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin til að gegna starfi deildarstjóra á göngudeild barna- og unglingageðdeildar LSH frá og með 1. september 2002. Ráðningin er á grundvelli umsóknar um stöðuna, umfjöllunar í stöðunefnd hjúkrunarráðs LSH, viðtals við sviðsstjóra hjúkrunar geðsviðs og hjúkrunarforstjóra.
Linda útskrifaðist frá hjúkrunardeild Háskóla Íslands árið 1990 og lauk M.S prófi í geðhjúkrun frá Wisconsin háskóla frá Madison í Bandaríkjunum árið 1998. Linda hefur starfað við LSH frá útskrift.
Deildarstjóri barna- og unglingageðdeildar starfar samkvæmt starfslýsingu.