Jónína H. Hafliðadóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin deildarstjóri á taugalækningadeild B-2 Fossvogi. Jónína lauk prófi í hjúkrunarfræði frá Hjúkrunarskóla Íslands 1978 og B.Sc. prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1997. Jónína starfaði á ýmsum deildum Ríkisspítala frá 1978-1986.. Jónína var deildarstjóri á Rannsóknarstofu í meltingarsjúkdómum frá 1986-1990. Árið 1990 tók hún við starfi deildarstjóra á taugalækningadeild Ríkisspítala.
Áætlað er að deild B-2 verður opnuð 1. október.