Yfirlæknir æðaskurðlækningadeildar
|
Stefán E. Matthíasson
yfirlæknir æðaskurðlækningadeildar
|
Stefán E. Matthíasson læknir hefur verið ráðinn til að gegna starfi yfirlæknis æðaskurðlækningadeildar á Landspítala - háskólasjúkrahúsi frá og með 1. júlí 2002. Ráðningin er á grundvelli umsóknar um stöðuna, umfjöllunar í stöðunefndum landlæknisembættisins og læknaráðs LSH, viðtals og að fenginni umsögn stjórnarnefndar LSH. Yfirlæknir æðaskurðlækningadeildar starfar samkvæmt starfslýsingu.