Þórir Kjartansson byggingaverkfræðingur hefur tekið sæti í stjórnarnefnd Landspítala - háskólasjúkrahús. Hann kemur inn í stjórnarnefnd sem aðalmaður fyrir Thomas Möller sem hvarf úr stjórnarnefnd þegar hann var ráðinn aðstoðarforstjóri Lyfjaverslunar Íslands hf. Þórir er rekstrarráðgjafi í eigin fyrirtæki, Íslenskri fjárfestingu ehf. Síðustu árin var hann framkvæmdastjóri Þórsbrunns hf. Hann sat í stjórn Sjúkrahúss Reykjavíkur 1998 til 1999.
Nýr stjórnarnefndarmaður
Þórir Kjartansson byggingaverkfræðingur er nýr í stjórnarnefnd Landspítala - háskólasjúkrahúss.