Gunnar Sigurðsson hefur verið ráðinn til að gegna starfi yfirlæknis sameinaðrar innkirtla- og efnaskiptadeildar Landspítala - háskólasjúkrahúss frá og með 15. mars 2002. Ráðningin er á grundvelli umsóknar um stöðuna, umfjöllunar í stöðunefndum landlæknisembættisins og læknaráðs LSH, viðtals og að fenginni umsögn stjórnarnefndar LSH. Yfirlæknir innkirtla- og efnaskiptadeildar starfar samkvæmt starfslýsingu.
Yfirlæknir innkirtla- og efnaskiptadeildar
Gunnar Sigurðsson yfirlæknir innkirtla- og efnaskiptadeildar LSH