Ákveðið hefur verið að fresta um eina viku málþingi um endurhæfingu krabbameinssjúklinga. Til stóð að málþingið yrði 11. apríl en það verður 18. apríl. Sagt var frá þessu málþingi í frétt á upplýsingavef LSH 12. mars. Viðbrögð voru í meira lagi lífleg. Fjölmargir báðu hins vegar um að málþinginu yrði frestað og var ákveðið að verða við því. Annað varðandi skipulag málþingsins verður óbreytt.
Málþingi frestað
Ákveðið hefur verið að málþing um endurhæfingu krabbameinssjúklinga verði 18. apríl en ekki viku fyrr eins og til stóð.