Greinargerð VSÓ-ráðgjafar vegna kostnaðar og tilhögunar framkvæmda við framtíðaruppbyggingu Landspítala - háskólasjúkrahúss er kominn á upplýsingavef sjúkrahússins. Í skýrslunni er gerð grein fyrir frumáætlunum um kostnað og tíma við undirbúning og framkvæmdir við uppbyggingu Landspítala - háskólasjúkrahúss, samkvæmt tillögum sem White arkitektar í Gautaborg unnu. Einnig er gerð grein fyrir mati á verðmæti eigna og réttinda sjúkrahússins á þeim lóðum sem það hefur yfir að ráða.
Skýrsla VSÓ-ráðgjafar er við höndina á vefsíðum um framtíðaruppbyggingu sjúkrahússins. Smellið á hreyfimyndina efst í hægra horni forsíðunnar.