Hildur Harðardóttir læknir hefur verið ráðin til að gegna starfi yfirlæknis fæðinga- og meðgöngudeildar kvennasviðs Landspítala - háskólasjúkrahúss frá og með 31. október 2001 að telja. Ráðningin er á grundvelli umsóknar um stöðuna, umfjöllunar í stöðunefndum landlæknisembættisins og læknaráðs LSH, viðtala og að fenginni umsögn stjórnarnefndar LSH. Yfirlæknir fæðinga- og meðgöngudeildar starfar samkvæmt starfslýsingu.
Yfirlæknir fæðinga- og meðgöngudeildar
Hildur Harðardóttir ráðin yfirlæknir fæðinga- og meðgöngudeildar