Leitað samnings vegna stöðu
yfirlæknis hjartalækningadeildar
Forstjóri og framkvæmdastjóri lækninga hafa ákveðið að leita eftir samningi við Guðmund Þorgeirsson lækni um að taka að sér stöðu yfirlæknis hjartalækningadeildar Landspítala - háskólasjúkrahúss. Við val í stöðuna var hefðbundið mats- og ráðningarferli viðhaft og málið síðan lagt fyrir stjórnarnefnd á síðasta fundi hennar.