Forstjóri býður starfsmönnum Landspítala – háskólasjúkrahúss að Kjarvalsstöðum í dag, fimmtudaginn 28. desember kl. 17:00 til 19:00. Þess er vænst að sem flestir starfsmenn sjái sér fært að líta þar inn, blanda geði við aðra fjarri erli dagsins og þiggja léttar veitingar. Ekki er gert ráð fyrir mökum. Með þessu jólaboði forstjóra eru sameinaðar hefðir sem voru á Landspítalanum, þar sem verið hefur boð fyrir hádegi á gamlársdag og síðdegisboð starfsmannaráðs Sjúkrahúss Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu milli jóla- og nýárs.
Starfsmönnum boðið að Kjarvalsstöðum í dag
Jólaboð forstjóra verður að Kjarvalsstöðum í dag, 28. desember 2000