Framkvæmdastjórn spítalans samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu um að sameina apótekin í Fossvogi og Hringbraut. Það gerist með þeim hætti að Sjúkrahúsaapótekið ehf. kaupir rekstur apóteksins við Hringbraut. Jafnframt var á fundi framkvæmdastjórnar lögð áhersla á að öll þjónusta apóteksins og samskipti yrðu tekin til endurskoðunar. Boðað var til fundar hjá starfsfólki apóteksins við Hringbraut kl.10:00 í morgun, þar sem þessi ákvörðun framkvæmdastjórnar var kynnt.
Apótekin sameinuð
Ákveðið hefur verið að Sjúkrahúsaapótekið ehf. kaupi rekstur apóteksins við Hringbraut