"Jól á Filippseyjum" nefnist sýning sem Hildur Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur á skrifstofu kennslu og fræða stendur fyrir á spítalanum á aðventunni. Sýningin verður tæplega einnar klukkustundar löng. Sýnendur verða filippínskir starfsmenn Landspítala - háskólasjúkrahúss. Á dagskrá verður söngur, dans, fróðleikur og matarsmökkun. Starfsmenn spítalans og sjúklingar eru velkomnir.
Þriðjudagur 19.desember | kl.12:30 | Landspítali Hringbraut | Anddyri K-byggingar |
Miðvikudagur 20.desember | kl.12:30 | Landspítali Landakoti | Pallur á 2. hæð |
Miðvikudagur 20.desember. | kl.14.15. | Landspítali Fossvogi | Pallur/skáli á 4.hæð. |