Skrifstofa tækni og eigna boðar til málstofu um skipulag lóða Landspítala - háskólasjúkrahúss og þá möguleika sem eru til uppbyggingar. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 9. nóvember 2000 kl. 16:00 í fundarsal í Eirbergi, Landspítala Hringbraut. Kynnt verður greining White-arkitekta á möguleikum sem lóðirnar í Fossvogi, Hringbraut og Vífilsstöðum bjóða upp á. Allir eru velkomnir á málþingið meðan húsrúm leyfir.
Frummælendur:
Ingólfur Þórisson framkvæmdastjóri
Aðalsteinn Pálsson sviðsstjóri byggingasviðs
Þorbergur Karlsson verkefnisstjóri VSÓ
Fundarstjóri:
Jónas Magnússon prófessor