Hjónin Dr. Richard Gusberg og Dr Leigh Evans frá Yale háskólanum í Bandaríkjunum eru í heimsókn á spítalanum þessa dagana. Hann kemur sem "gestaprófessor" frá skurðdeildinni á Yale. Þetta er
hluti af þeirri samvinnu sem verið hefur við Yale í tvö og hálft ár. Dr. Richard Gusberg er æðaskurðlæknir en hefur staðið framarlega í kennslumálum á skurðdeildinni og í læknadeild Yale. Dr. Leigh Evans er nýlega búin með nám í Emergency Medicine (bráðmóttökulækningum). Dagskrá heimsóknar þeirra lýkur á sunnudaginn.