Lionsmenn úr tveimur klúbbum á höfuðborgarsvæðinu komu færandi hendi í dag með gjafir til barna- og unglingadeildar (BUGL). Lionsklúbburinn Ægir gefur barnadeildinni þroskamatsleikföng og iðjuþjálfunin er einnig að fá matstæki. Lionsklúbbur Kópavogs gefur barnadeild og Kleifarvegi milli 500 og 600 þúsund krónur. Féð verður notað til að kaupa stóla og leiktæki.
Lionsmenn gefa BUGL
Lionsmenn komu í tvígang á spítalann í dag og færðu gjafir