Leit
LokaHeimsóknartímar á Landspítala
Í gildi á Landspítala frá 6. ágúst 2024:
- Heimsóknartímar á legudeildir Landspítala eru á tímabilinu 16:30-19:30 virka daga og frá kl. 14:30-19:30 um helgar og á hátíðisdögum.
- Gestir eru beðnir um að fresta heimsókn ef þeir hafa einkenni um öndunarfærasýkingu. Ef heimsókn er nauðsynleg skal gestur bera grímu og hreinsa hendur fyrir og eftir heimsókn.
- Sérstök athygli er vakin á því að þessar reglur eiga aðeins við um legudeildir en ekki um bráðamóttökur, vökudeild, fæðingavakt og meðgöngu- og sængurlegudeild. Viðvera aðstandenda, annarra en foreldra barna, á þessum deildum er aðeins heimili í sérstökum tilvikum og þá með leyfi stjórnenda.
- Deildarstjóri eða vaktstjóri hefur heimild til að veita undanþágu frá þessum takmörkunum við sérstakar aðstæður.
___________________________________________________________
- Bráðamóttakan í Fossvogi- Heimsóknir ekki leyfðar!
- Meðgöngu- og sængurlegudeild - Heimsóknir ekki leyfðar!