OPIÐ8-16
Leit
LokaDagdeild - Grensás
Staðsett á 3. hæð og opin alla virka daga kl. 8:00-16:00
Hafðu samband
Hagnýtar upplýsingar
- Sími 543 9327 og 543 9329
Deildin er ætluð þeim sem þurfa fjölþætta þjálfun hjá a.m.k. tveimur eða fleiri meðferðaraðilum samhliða.
Flestir koma á dagdeild í framhaldi af dvöl á sólarhringsdeild en aðrir koma frá hinum ýmsu deildum spítalans eða að heiman.
Boðið er upp á hádegisverð, morgun- og síðdegiskaffi
Aðstaða til að hvílast er fyrir hendi
Allir fá læstan skáp
- Sjúklingar sjá um lyf sín sjálfir og þeir sem nota sérhæfðar vörur eins og þvagleggi og stómavörur koma með þær að heiman
- Sjúklingar sjá sjálfir um að koma sér til og frá Grensásdeild
- Hægt er að fá aðstoð við að sækja um akstursþjónustu hjá félagsráðgjafa
- Best er að sækja um tímanlega því það tekur nokkra daga að fá umsókn afgreidda