Umsóknarferli fyrir íslenska nemendur sem eru í námi við erlenda háskóla
Athugið að fjöldi námsplássa eru takmörkuð. Við hvetjum því nemendur til að sækja um í gegnum NORDPLUS eða ERASMUS, sérstaklega ef um lengri námsdvöl er að ræða. Alþjóðaskrifstofa Háskóla Íslands tekur á móti umsóknum, sjá www.ask.hi.is
Nemendur sem vilja sækja um starfsnám á Landspítala, vinsamlega kynnið ykkur eftirfarandi:
Athugið að verknám á Landspítala er ólaunað!
Nemendur sem sækja um starfsnám beint til Landspítala, eru vinsamlega beðnir um að senda eftirfarandi í einum tölvupósti:
- Umsókn um verknám >>
Vinsamlegast athugið: Notið Adobe Acrobat Reader, en ekki Apple Preview þegar þið fyllið út þetta skjal. Við lendum í vandræðum með að lesa það ef Apple Preview hefur verið notað. Sjá hvernig hlaða má niður Adobe Acrobat Reader til að komast hjá þessu vandamáli á eftirfarandi síðu >>
Það má eins taka skjámynd af síðunni eða skanna hana inn og senda þannig.
Beiðni um klínískt nám á Landspítala - læknanemar:
- Beiðni um klínískt nám á lyf- og skurðlækningasviði
- Beiðni um klínískt nám á Barnaspítalanum
- Beiðni um klínískt nám á fæðinga- og kvensjúkdómalækningum
- Beiðni um klínískt nám á geðsviði: Vinsamlegast hafðu samband við Engilbert Sigurðsson engilbs@landspitali.is
- Beiðni um klínískt nám á taugadeild: Vinsamlegast hafðu samband við Elías Ólafsson eliasol@landspitali.is
- Ferilskrá með upplýsingum um náms- og starfsferil
- Staðfesting á skólavist frá háskóla, þar sem fram komi á hvaða ári nemi er í námi og hvenær gert er ráð fyrir að námi ljúki.
- Listi yfir lokin námskeið og listi yfir námskeið sem verður lokið þegar starfsnám hefst
- Meðmælabréf frá einum yfirmanni sem getur staðfest frammistöðu umsækjanda í klínísku starfi eða frammistöðu sem nemanda í heilbrigðisgrein
- Vegabréfsmynd eða svipuð mynd
Vinsamlega sendið ofangreindar upplýsingar í EINUM TÖLVUPÓSTI til:
Hjúkrunarnemar: nursingstudents@landspitali.is
Lyfjafræðinemar: pharmacystudents@landspitali.is
Aðrir nemendur: otherstudents@landspitali.is