Sérnám í fæðingar- og kvensjúkdómalækningum
Námstími: 3 ár
Kennslustjóri: Arnfríður Henrysdóttir
Samstarf: Royal College of Obstetricians and Gynaecologist /RCOG
Sérnám í fæðinga-og kvensjúkdómalækningum fer fram á kvennadeild Landspítala. Boðið hefur verið upp á skipulagt sérnám í faginu um nokkurra ára skeið. Sú breyting varð á að hafið var samstarf við Samtök breskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna (Royal College of Obstetricians and Gynaecologist /RCOG) fyrir nokkrum árum og er skipulag sérnámsins á Íslandi því að mestu leyti byggt á því meitlaða skipulagi sem þaðan kemur. Heimasíða samtakanna er www.rcog.org.uk
Lengd sérnáms í fæðinga-og kvensjúkdómalækningum er í heildina um 5 ár. Við grunnnámið getur svo bæst nám í ólíkum undirsérgreinum fagsins seinna meir.
Athugið að á Landspítala er þó einungis boðið upp á fyrstu 3 ár sérnámsins í fæðinga-og kvensjúkdómalækningum.
Kennsluráð:
Arnfríður Henrýsdóttir kennslustjóri / Sérfræðingur
Brynja Ragnarsdóttir sérfræðingur
Hulda Hjartardóttir Yfirlæknir
Jóhanna Gunnarsdóttir forstöðumaður fræðasviðs
Kristín Jónsdóttir sérfræðingur
Kolbrún Pálsdóttir yfirlæknir
Ásdís Sveinsdóttir umsjónarsérnámslæknir
Sylvía Kristín Stefánsdóttir umsjónarsérnámslæknir
Alexasnder Smárason yfirlæknir Sak
Hildur Gísladóttir læknaritari
Fjöldi sérnámslækna: Á hverjum tíma starfa um 8 sérnámslæknar í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum á kvennadeild Landspítala. Hver þeirra er frá upphafi náms, með sérnámshandleiðara sem fylgir þeim eftir á námstímanum. Auk sérnámslækna í faginu starfa á hverjum tíma á deildinni 2 sérnámslæknar í heimilislækningum og 1-2 læknakandídatar.
Sérfræðingahópur kvennadeildar: Hittist mánaðarlega á fundum, og ræðir þá m.a. framgang hvers sérnámslæknis og hvernig best má styðja við viðkomandi, til þess að ná sínum markmiðum.
Reglulegt stöðumat: Sérnámshandleiðarinn tekur viðtöl við námslækninn til mats á framvindu, a.m.k. 3 sinnum á ári en mælst er þó til þess að sérnámslæknir og sérnámshandleiðari, hittist á styttri fundum í hverjum mánuði. Sérnámshandleiðarinn er til staðar til að gefa góð ráð og leysa úr vandamálum.
Árlegt framvindumat: Gert í lok námsárs. Kallast þessir fundir ARCP (Annual Review of Competence Progression ) og er þar metið hvort námslæknir hefur staðist kröfur námsársins og getur hafið nám á næsta ári
Próf: Ætli sérnámslæknir að sækja um sérnámsstöðu á 3.ári er gerð krafa um að hann hafi lokið stöðuprófi, sem kallast part 1 MRCOG áður. Þetta próf er hægt að taka á hvaða tíma sem er fyrir 3. árið.
Marklýsing sérnámsins er staðfest af mats- og hæfisnefnd Velferðarráðuneytisins og má finna á heimasíðu Embættis landlæknis. eða með því að smella hér á Marklýsing sérnáms í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum.
Matskerfi:
Við styðjumst við viðtöl við sérnámslæknana, sérfræðingafundi og matsblöð ýmis konar, til þess að meta færni okkar sérnámslækna. Dæmi um matsblöð eru CbD, mini-CEX og OSATS auk 360°mats sem gert er 2svar á ári. Það kallast í dag TO (team observation)
Kennsla sérnámslækna á kvennadeild:
-Klínísk kennsla, bæði fræðaumræða og verkleg inngrip s.s. sónarskoðanir, fer fram á deildum alla daga.
-Vikulegir fyrirlestrar sérfræðinga(StratOG) á fimmtudögum.
-Þemadagar - hálfsdags fyrirlestrarröð í hverjum mánuði um valið fagtengt efni s.s. aðgerðartækni við speglanir, áhaldainngrip í fæðingum, tíðarhvörf og hormónameðferðir o.fl.
-Greinarfundir: Læknar kvennadeildar hittast í heimahúsi 2-3 sinnum á önn þar sem 2 sérnámslækna okkar hafa kynnt sér vísindagrein og fara í gegnum hana með kollegunum, fá aðstoð og umræðu varðandi hvernig meta á gæði rannsókna og birtra greina. Þetta eru mjög skemmtilegir fundir félagslega auk fræðilegs gildis
- Námskeið innan húss: PROMPT námskeið í bráðauppákomum tengdum meðgöngum og fæðingum eru nokkrum sinnum á ári.
-Ráðstefnur innan lands og utan: Fjölskyldan og barnið (september ár hvert), Græna þing skurð- og svæfingarlækna í apríl. ALSO er ca annað hvert ár. Önnur námskeið í UK/USA/Skandínavíu
-Tilfellafundir tvisvar í viku
-Fösudagsfræðslufundir: Klukkutíma fræðslufundir á deildinni hvern föstudag.
-Viðrunarfundir í hádegi á föstudögum: Miðaðir að sérnámslæknum þar sem fara á í ýmsa praktíska þætti náms s.s. hnýtingar, sónarnotkun í fæðingum, leit í gagnagrunnum, gæðaverkefni, vísindavinnu o.fl.
-M&M fundir eru amk tvisvar á önn á deildinni. Farið á djúpið í ýmis tilfelli með lærdómsríkum vinklum hvað varðar “morbititet/mortalitet” =M&M.
-Burðarmálsdauðafundir.
-Þverfaglegir teymisfundir.
Dagvinna og vaktir
Dagvinnna: Alla virka daga frá kl. 08:00-16:00.
Vaktir: Virka daga skipta sérnámslæknarnir með sér styttri vöktum frá kl. 16:00-20:00, svokallaðir „stubbar.“ Næturvaktin er svo um kl. 20:00-08:00. Helgarvaktir eru frá kl. 09:00-21:00 / 21:00-09:00. Sérfræðingur er til staðar í húsi allan vaktatímann og bakka upp sína sérnámslækna á öllum starfsstöðvum.Kennslustjóri kvennadeildar: Arnfríður Henrýsdóttir
Kennsluráð:
Arnfríður Henrýsdóttir kennslustjóri / sérfræðingur
Brynja Ragnarsdóttir sérfræðingur
Hulda Hjartardóttir yfirlæknir
Jóhanna Gunnarsdóttir forstöðumaður fræðasviðs
Kristín Jónsdóttir sérfræðingur
Kolbrún Pálsdóttir yfirlæknir
Ásdís Sveinsdóttir umsjónarsérnámslæknir
Sylvía Kristín Stefánsdóttir umsjónarsérnámslæknir
Alexasnder Smárason yfirlæknir Sak
Hildur Gísladóttir læknaritari
Kennslustjóri: Arnfríður Henrysdóttir.
Landspítali auglýsir sérnámsstöður lækna tvisvar á ári.
Gert er ráð fyrir að sérnámslæknar hefji störf 1. mars og í júní ágúst árlega. Í fyrstu viku er skylt að mæta á formlega móttökudaga sem eru kynntir þegar nær dregur.
Samvinna hefur verið staðfesti milli SAk og fæðinga- og kvensjúkdómalækninga um sérnám og er gert ráð fyrir að sérnámslæknar vinni á báðum stöðum nema sérstakar aðstæður leyfi það ekki (frá vori 2024)
- Sérnámssamningur
- Kynningarmyndband um sérnám í fæðingar- og kvensjúkdómalækningum
- Móttökumiðstöð fyrir nýja starfsmenn- spurt og svarað
Skrifstofustjóri sérnáms: Ingibjörg Þóra Sæmundsdóttir, skrifstofasernams@landspitali.is